Über Organisation
Über-Text wird übersetzt…
Í Kópavogi eru 9 félagsmiðstöðvar fyrir börn og ungmenni 10-16 ára staðsett í grunnskólunum, eitt ungmennahús sem þjónustar ungmenni 16-25 ára og frístundaklúbbur fyrir ungmenni með sérþarfir. Frístundaklúbburinn þjónustar 10-16 ára ungmenni í sveitafélaginu allt árið um kring. Frístundastarfið er undir frístunda- og forvarnardeild sem tilheyrir Menntasviði Kópavogsbæjar. Opnunartímar félagsmiðstöðvanna eru á skólatíma og tvö til þrjú kvöld í viku þar sem unnið er markvisst að byggja upp sjálfsmynd þeirra og samskiptafærni með óformlegu námi, samveru með öðru ungu fólki og faglegu starfsfólki. Það er einnig hluti af markmiðinu að bjóða upp á öruggt umhverfi þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín á eigin forsendum. Opnunartíminn í ungmennahúsinu er 4 virka daga upp úr hádegi og fram á kvöld. Einnig eru sérstakar opnanir utan þess tíma þegar verið er að vinna að sérstökum verkefnum. Frístundaklúbburinn tekur við ungu fólki með sérþarfir þegar skóladegi þeirra lýkur.
ESC-Akkreditierungs- und Qualitätsinformationen
This organisation holds a European Solidarity Corps Quality Label. The Quality Label certifies that the organisation is able to run projects in compliance with the principles and objectives of the European Solidarity Corps. — Scope: Volunteering
