Last updated: 25 August 2026
About Organization
Við erum sveitarfélag. Við bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu á frístundasviði. Hér eru staðsett þrjú frístundaheimili, tvö frístundaheimili sem sértæk úrræði fyrir fatlaða, félagsmiðstöð og ungmennahús. Markmið okkar er að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu við öll börn og ungmenni sveitafélagsins. Frístundasviðið vinnur náið saman og myndar eina sterka heild sem skilar sér í góðu og faglegu starfi í þágu fjölskyldna í sveitarfélaginu. Markhópurinn sem við á frístundasviði erum með eru krakkar frá 5 ára aldri og upp í 25 ára. Sviðið er stórt og því fjölbreytt verkefni í boði. Hjá okkur vinnur allur aldur starfsfólks, allt frá 18 ára aldri. Helstu verkefni starfsmanna frístundasviðs fara eftir starfstöðvum þó megin hlutverkið sé alltaf að efla einstaklinginn og aðstoða hann eftir fremsta megni að móta með sér heildstæða sjálfsmynd. Á frístundaheimilunum eru börn í fyrstu bekkjum grunnskóla. Þar er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf eftir að skóladegi lýkur. Ásamt því að veita þar ákveðna grunnþjónustu er unnið með börnunum í allskyns smiðjum. Þar má nefna tónlistasmiðju, listasmiðju, hreyfismiðju og fleira. Mikilvægt er að á frístundaheimilunum fái hvert barn tækifæri til þess að leika sér, skapa og njóta sín í öruggu umhverfi. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að ná til allra nemenda á mið- og unglingastigi grunnskólanna og gefa þeim tækifæri á að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli. Leitast er við að mæta hverjum einstakling á hans forsendum og veita honum tækifæri til að njóta sín í félagsstarfinu. Félagsmiðstöðin er vettvangur þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að sýna frumkvæði, axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum. Starfið einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og ungmennalýðræði. Félagsmiðstöðin heldur úti fjölbreyttri dagskrá í samstarfi við unglingaráð sem tekur mið af áhugamálum unglinganna hverju sinni. Félagsmiðstöðin stuðlar að jákvæðum og þroskandi samskiptum meðal barna og unglinga og örvar félagsþroska þeirra og lýðræðisvitund. Félagsmiðstöðin vinnur einnig markvisst að forvarnarmálum og valdeflingu en starfsmenn hennar notast við aðferðafræði reynslunáms. Unglingarnir í sveitarfélaginu sjá um félagsmiðstöðina ásamt starfsmönnum. Mikið er lagt upp úr því að unglingarnir sjálfir skipuleggi dagskrá og undirbúi og stýri viðburðum. Viðburðirnir eru margvíslegir. Opna starfið í félagsmiðstöðinni er þrjú kvöld í viku og er opið frá 19:30-22:00. Þar er margt að gera eins og pool, borðtennis, ýmis spil og leikir, pílukast, tónlist, spjall og nánast það sem hugurinn girnist. Starfmenn leggja sig fram við það að vera til staðar fyrir unglinganna og gera með þeim það sem hentar hverju sinni. Flest opin kvöld eru skipulagðir viðburðir sem taka einhvern eða allan hluta kvöldsins. Viðburðirnir eru allskyns. Til dæmis FIFA mót, borðtennismót, allskonar keppnir, spurningaleikir, ískvöld og margt, margt fleira. Félagsmiðstöðin er einnig mjög stolt af sínu hópastarfi. Hópastarfið væri meðal annars það sem sjálfboðaliðarnir kæmu inn í. Núna erum við með nokkra starfandi hópa í félagsmiðstöðinni en það liggur fyrir að auka við starfsemina. Við erum með tvo kynjaskipta hópa þar sem aðal markmiðið er að styrkja unglinganna persónlega. Sem sagt byggja upp sjálfstraust, fræða um allskyns málefni og efla þannig færni á ýmsum sviðum. Þessir hópar hafa verið í mörg ár hjá okkur og hafa gengið mjög vel. Við erum einnig með nokkra hópa sem samanstanda af krökkum og unglingum sem að eiga erfitt félagslega. Í sumum tilfellum er verið að auka félagslega virkni og í öðrum er verið að aðstoða með félagsfærnina. Vinnan fer þannig fram að hópmeðlimir ráða sjálfir hvað er gert í samstarfi við starfsfólk og starfsfólkið vinnur síðan út frá því. Allt með því markmiði að bæta félagsfærni og auka félagslega virkni. Við í félagsmiðstöðinni erum mjög spennt að bæta við hópastarfið okkar og myndum nýta styrk þeirra sjálfboðaliða sem koma og styðja þau í að búa til það hóp
ESC Accreditation & Quality Information
This organisation holds a European Solidarity Corps Quality Label. The Quality Label certifies that the organisation is able to run projects in compliance with the principles and objectives of the European Solidarity Corps. — Scope: Volunteering
OID-E10068417
ESC Accreditation Roles
Community Rating Breakdown
Calculated from authentic ESC community volunteer experiences.
0 reviews
Be the first volunteer to share your experience with this organization!
Volunteer Reviews
Real feedback from volunteers who completed their ESC projects.
No community reviews yet
Be the first volunteer to share your experience with this organization!
Community Discussions
Questions, accommodation advice, and conversations linked to this organization.
No discussions yet
Start the first conversation about this organization! Ask questions or share tips.
