Over Organisatie
Over-tekst wordt vertaald…
Garðalundur er félagsmiðstöð sem er ekki rekin í hagnaðarskyni og tilheyrir Garðabæ. Markhópur Garðalundar eru unglingar á aldrinum 13-16 ára. Félagsmiðstöðin er opin alla daga vikunnar og þar er reglulega viðburðir sem eru allt frá því að vera lágstemmd spilakvöld yfir í að vera tónleikar með þekktum tónlistarmönnum. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að unglingarnir njóti sín og hafi athvarf en á sama tíma styðjum við uppbyggingu sjálfsmyndar þeirra með því að valdefla þau, gefa þeim kost á að skipuleggja viðburði og virkja sköpunarkraft þeirra. Í Garðalundi vinnum við eftir unglingalýðræði, þar sem unglingarnir setja sinn svip á starfið. Í félagsmiðstöðinni vinna 15 frístundaleiðbeinendur. Af þeim eru 14 í 15-25% hlutastarfi og 1 í fullu starfi. Starfsmannahópurinn kemur með fjölbreytta nálgun í starfið í félagsmiðstöðinni þar sem þau eru með ólíka menntun, ólíkan bakgrunn og ná á misjafnan hátt til unglinganna. Verkefnin sem starfsfólkið hefur sinnt er meðal annars að efla félagslega og persónulega færni unglinganna, vinna með fötluðum ungmennum, byggja þau upp til samfélagsþátttöku.
ESC-accreditatie en kwaliteitsinformatie
This organisation holds a European Solidarity Corps Quality Label. The Quality Label certifies that the organisation is able to run projects in compliance with the principles and objectives of the European Solidarity Corps. — Scope: Volunteering
